Reykjavíkurvegur 60 ● 220 Hafnarfjörður Sími:  562 0600 GSM: 846 7253 E-mail: skuli(a)vegsyn.is

Í lögum Magnúsar lagabætis í Noregi frá 1274 er vegsýn hugtakið yfir gæðaeftirlit með viðhaldi á þjóðvegum (norska: veisyn, einnig baugreid)

nánar

 

Vegsýn

Vegsýn er þekkingarfyrirtæki á samgöngu- og byggingarsviði, stofnað árið 2007. Tilgangur Vegsýnar er að vinna við ráðgjöf, rannsóknir og þróun, ásamt upplýsingamiðlun um rannsóknir. Meginmarmið Vegsýnar er að byggja undir þekkingu sem stuðlar að faglegri gerð og framkvæmd samgönguáætlunar íslenskra stjórnvalda.

Vegsýn er landstengiliður við samgöngurannsóknir
7. Rannsóknaáætlunar ESB (FP7 National Contact Point for Transport) í samstarfi við Rannís. Landstengiliður  veitir upplýsingar um áætlunina, leiðbeinir vegna umsóknargerðar og aðstoðar við samstarfsleit vegna þátttöku í 7. Rannsóknaáætluninni.

Leiðarljós Vegsýnar í átt að markmiðunum eru;

· að taka þátt í  tæknilegum verkefnum þar sem sérþekking fyrirtækisins gefur forskot

· að stuðla að samskiptum hagsmunaaðila um rannsóknir og þróun á samgöngusviði, svo sem notenda, rannsakenda og stjórnvalda

Orðið vegsýn er lýsandi fyrir sýn okkar um greiðar, öruggar, hagkvæmar og sjálfbærar samgöngur á 21. öldinni.

Vegsýn

Reykjavíkurvegur 60

220 Hafnarfjörður

Hafðu samband:

Sími:  562 0600

GSM: 846 7253

E-mail: skuli(a)vegsyn.is

Weather Forecast

Loftslagsbreytingar og Vegagerð

Skúli Þórðarson hjá Vegsýn hefur um árabil fylgst með rannsóknum á áhrifum loftslagsbreytinga á vegagerð, og aðgerðum veghaldara í nágrannalöndunum til aðlögunar að loftslagsbreytingum. Vegsýn tekur þátt í undirbúningsvinnu Vegagerðarinnar vegna aðlögunar að loftslagsbreytingum.

Áfangaskýrsla 2009

Áfangaskýrsla 2008

Verkefni Statens vegvesen: Klima og Transport,              Informasjonsdag 2009 med internasjonalt seminar

Grein í Nordic

(keywords: Climate change, climate adaptation, loftslagsbreytingar, veðurfarsaðlögun)

 

Kennslubók í viðhaldi vega

SINTEF í Þrándheimi hefur tekið að sér að skrifa nýja kennslubók um viðhald vega fyrir Statens vegvesen. Bókin fjallar um allar hliðar viðhalds og þjónustu fyrir vegi þar með talið vetrarþjónustu. SINTEF hefur samið við Vegsýn um gerð vetrarþjónustukafla bókarinnar.

(keywords: Road winter service, vetrarþjónusta)

 

 

Ráðstefnugrein um frostdýptarlíkan Vegagerðarinnar

Vegsýn hefur á undaförnun misserum ásamt fleiri aðilum unnið að þróun frostdýptarlíkans fyrir vegi en verkefnið er styrkt af rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar. Í febrúar 2010 var líkanið kynnt á vetrarvegaráðstefnu  PIARC. Greinina má finna hér.

(keywords: frost-depth prognosis, frostdýptarspá, bearing capacity, spring thaw weakening, thaw modeling, þungatakmarkanir, axle load restrictions)

 

 

Handbók um snjóhönnun vega

Vegsýn vinnur nú að gerð handbókar um snjóhönnun vega fyrir Statens vegvesen í Noregi ásamt sérfræðingum stofnunarinnar. Í tengslum við gerð bókarinnar var haldið námskeið um snjóhönnun fyrir starfsmenn síðasta vor. Snjóhönnun vega fjallar um staðsetningu og hönnun vega með tilliti til skafrennings og vetrarþjónustu.

(keywords: snow drifting, skafrenningur, veghönnun)